Stórsýningin Verk og vit verður haldin í sjötta sinn dagana 18.-21. apríl 2024 í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal. Mikill áhugi hefur jafnan verið á sýningunni, bæði meðal fagaðila og almennings, og hefur hún fest sig í sessi sem lykilviðburður og einskonar uppskeruhátíð í byggingariðnaði, skipulagsmálum og mannvirkjagerð á Íslandi. Markmið sýningarinnar eru annars vegar að auka tengslamyndun og styrkja viðskiptasambönd milli fagaðila og hins vegar að auka vitund almennings um starfsemi atvinnugreinanna sem að sýningunni koma, meðal annars hvað varðar vitund um gæða- og menntamál. Almenn sala sýningarsvæðis hefst um miðjan maí. 

Verk og vit hefur ávallt vakið mikla athygli og verið vel sótt. Gestafjöldi á síðustu sýningum hefur verið í kringum 25.000 og rúmlega 100 sýnendur hafa kynnt vörur sínar og þjónustu. Þá hafa verið haldin ráðstefna og aðrir viðburðir í tengslum við sýninguna þar sem fjallað er um byggingariðnað, skipulagsmál, mannvirkjagerð og menntamál frá ýmsum sjónarhornum. Hefur það jafnan aukið faglega umræðu og eflt nýliðun í þessum greinum. 

Sýnendur á Verk og vit 2022 voru m.a. byggingaverktakar, verkfræðistofur, tækjaleigur, hugbúnaðarfyrirtæki, framleiðendur, menntastofnanir, fjármálafyrirtæki, ráðgjafafyrirtæki og sveitarfélög. Í viðhorfskönnun sem Zenter gerði meðal sýnenda sögðust um 92% hafa verið ánægðir með sýninguna og 94% sögðust hafa náð markmiðum sínum vel eða mjög vel. Það kemur því ekki á óvart að nær allir sýnendur töldu vera grundvöll fyrir því að halda Verk og vit aftur.

AP almannatengsl er framkvæmdaraðili sýningarinnar en samstarfsaðilar eru; mennta- og barnamálaráðuneytið, innviðaráðuneytið, Samtök iðnaðarins, Byko og Landsbankinn.

Skráning