Stórsýningin Verk og vit hefst Laugardalshöll í dag. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra munu setja sýninguna formlega.
Sýningin hefur fest sig í sessi sem einn mikilvægasti vettvangur fagaðila í byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum og munu um 100 sýnendur taka þátt í ár. Sýningin er opin fagaðilum alla sýningardagana, en almenningi gefst kostur á að heimsækja hana helgina 21.-22. mars.

Eftirvæntingin er sérstaklega mikil í ár, því 20 ár eru liðin frá fyrstu sýningunni og segir Áslaug greinilegt að sýnendur stefni að því að gera afmælissýninguna sem veglegasta. „Margir þeirra þekkja handtökin vel, því þátttaka í sýningunni er orðin fastur liður í starfsemi fjölmargra fyrirtækja. Það er einstök upplifun að ganga inn í sýningarsalinn við opnun, finna orkuna og sjá hvernig hugmyndir og vinna síðustu mánaða lifna við.”

Mikilvægur fundarstaður fyrir iðnaðinn

Áslaug segir að Verk og vit sé mikilvægur fundarstaður fyrir iðnaðinn í heild sinni þar sem tengslamyndun, samstarf og ný tækifæri verða til. „Hér myndast formlegir og óformlegir fundir, nýsköpun kviknar og þekking innan iðnaðarins eykst. Þetta er vettvangur sem styrkir samstarf og samstöðu innan greinarinnar og þannig myndast einstök heildarupplifun sem hefur einkennt Verk og vit frá upphafi,”

Meðal sýnenda eru byggingaverktakar, verkfræðistofur, tækjaleigur, hugbúnaðarfyrirtæki, framleiðendur, menntastofnanir, fjármálafyrirtæki og ráðgjafafyrirtæki og er mikill hugur í þeim að gera sýninguna sem glæsilegasta. Allt sýningarrými er löngu uppselt og því ljóst að sýnendur ætluðu ekki að missa af viðburðinum í ár.
Samhliða sýningunni verður einnig haldin ráðstefna og aðrir viðburðir. Áhugi fagaðila og almennings hefur verið mikill, því síðustu þrjár sýningar hafa fengið um 25.000 gesti hver.

Samstarfsaðilar sýningarinnar eru félags- og húsnæðismálaráðuneytið, innviðaráðuneytið, Samtök iðnaðarins, Byko og Landsbankinn. AP almannatengsl eru framkvæmdaraðili sýningarinnar. Miðasala fer fram á Tix.is.