Líf og fjör hefur verið í Laugardalshöllinni undanfarna daga þar sem fyrirtæki vinna að kappi við uppsetningu sýningarinnar Verk og vit sem hefst á morgun. Það er gaman að sjá hvað sýnendur leggja mikinn metnað í sýningarsvæðin og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi, segir Elsa Giljan Kristjánsdóttir sýningarstjóri.
Verk og vit verður haldin dagana 19.–22. mars 2026 í Laugardalshöll. Sýningin hefur fest sig í sessi sem einn mikilvægasti vettvangur fagaðila í byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum og munu um 100 sýnendur taka þátt í ár. Sýningin er opin fagaðilum alla sýningardagana, en almenningi gefst kostur á að heimsækja hana helgina 21.-22. mars.

















