Mikið hefur verið um að vera í Laugardalshöllinni undanfarna daga þar sem fyrirtæki vinna að kappi við uppsetningu sýningarinnar Verk og vit sem hefst á morgun. Það er gaman að sjá hvað sýnendur leggja mikinn metnað í sýningarsvæðin og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi, segir Elsa Giljan Kristjánsdóttir sýningarstjóri.

Meðal sýnenda á Verk og vit eru byggingarverktakar, verkfræðistofur, menntastofnanir, fjármála- og ráðgjafafyrirtæki, tækjaleigur, hugbúnaðarfyrirtæki og sveitarfélög svo eitthvað sé nefnt. Fyrstu tveir dagar sýningarinnar, fimmtudag og föstudag, eru hugsaðir fyrir fagaðila en seinni tvo dagana, laugardag og sunnudag er almenningi einnig boðið að heimsækja sýninguna.

Sýningin Verk og vit hefur sannað sig sem mikilvægur vettvangur fyrir aðila í bygginga- og mannvirkjageiranum til að hittast, styrkja viðskiptasambönd og mynda ný, kynna vörur og þjónustu og nýjungar, ásamt því að ræða málin.

Sjá allar myndir