Sala sýningarsvæðis á Verk og vit 2018 gengur vel og nú þegar eru um 80% sýningarsvæðisins seld og um 80 sýnendur skráðir til leiks þrátt fyrir að enn séu um fjórir mánuðir í sýninguna.

„Við höfum fundið fyrir miklum áhuga á sýningunni eins og sjá má á því að þegar eru um 80% sýningarsvæðisins seld. Það er mikill uppgangur í byggingariðnaði og mann-virkjagerð og margar framkvæmdir á teikniborðinu. Verk og vit hefur sýnt og sannað að hún er góður vettvangur fyrir aðila til að hittast, kynna vörur og þjónustu ásamt því að ræða málin, sem meðal annars skýrir þessa góðu þátttöku,“ segir Ingibjörg Gréta Gísladóttir, framkvæmdastjóri sýningarinnar.

Stórsýningin Verk og vit er ætluð framleiðendum og innflytjendum sem koma að bygginga- og mannvirkjagerð á ýmsum stigum, s.s. sveitarfélögum, verktökum, iðnaðar- og þjónustufyrirtækjum, hönnuðum, menntastofnunum og ráðgjöfum.

Verk og vit er nú haldin í fjórða sinn dagana 8.–11. mars 2018 í íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal. Fyrstu tvo dagana, 8. og 9. mars, verður sýningin opin fyrir fagaðila en helgina 10.–11. mars verður almenningur einnig boðinn velkominn.

Framkvæmdaraðili sýningarinnar er AP almannatengsl en samstarfsaðilar eru atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Reykjavíkurborg, Samtök iðnaðarins, BYKO og Landsbankinn.