ÞJÓNUSTUAÐILAR
Merking
Verk og vit er í samstarfi með Merkingu um að þjónusta þá sýnendur sem kjósa að vera með sýningarkerfi. Kerfi með veggjum, lýsingu og merkingu á hatt er á kr. 8.900 p. fm. án vsk.
Tengiliðir varðandi Verk og vit eru: pawel@merking.is; lukasz@merking.is
Sími: 556-9000
Merking er stærsti þjónustuaðili á íslandi varðandi skiltagerð, sýningarhald, prentun og framleiðslu kynningarefnis. Hvort sem um er að ræða kerfisbása eða sérlausnir þá höfum við lausnir sem unnar eru með hverjum og einum viðskiptavini.
Frekari upplýsingar um kerfin og sýnishorn má sjá hér: https://www.merking.is/expo
Sonik
Sonik stendur framarlega í fyrirtækjaviðburðum af ýmsu tagi eins og sýningum, árshátíðum, ráðstefnum og vefútsendingum.
Sonik hefur leigt út mynd-, hljóð- og ljósabúnað (upphengibúnað) til sýningahaldara á sýningar og viðburði.
Hjá Sonik starfa sérfræðingar sem hafa áralanga reynslu af fjölbreytttri tækniþjónustu og er þeim umhugað að veita viðskiptavinum sínum faglega og góða þjónustu.
Tengiliður:
Gunnar Þór Möller
gunnar@sonik.is
+354 893 7037
Íþrótta- og sýningahöllin Laugardal
Íþrótta- og sýningahöllin hf. (ÍSH) er rekstraraðili Laugardalshallar. ÍSH þjónustar viðburði og fagaðila með aðkomu þeirra að húsnæðinu. Laugardalshöll hefur verið vettvangur margra stærri viðburða, s.s. vörusýninga, tónleika, árshátíða, íþróttaviðburða og ráðstefna.
Sýningaraðilum sem óska eftir sérþjónustu við komu í húsnæðið, leigubúnað eða netsambandi í sýningarrými sitt, er vinsamlegast bent á að hafa samband við verkefnastjóra ÍSH með góðum fyrirvara.
Tengiliður:
Valgeir Ingason
valgeir@ish.is
+354 8982640
Armar
Armar er stærsta leigufyrirtæki á vélum og tækjum í byggingaiðnaði á Íslandi. Armar leigja út tæki sem henta bæði innan- og utandyra, eins og t.d. skæra- og spjótlyftur, skotbómulyftara, gaffallyftara, rafmagnstjakka og pallettutjakka. Armar aðstoða þig við að finna tækið sem hentar þínu fyrirtæki til uppsetninga á sýningarrými þínu á Verk og vit 2024.
Tengiliður:
Ævar Þór Ólafsson
aevar@armar.is
+354 6601705
Terra
Terra þjónustar Verk og vit við söfnun endurvinnsluefna, flokkun og sorphirðu á sýningunni. Terra veitir viðskiptavinum sínum um allt land víðtæka umhverfisþjónustu á borð við sölu og leigu á flokkunarílátum, gámum og tunnum, spilliefnaþjónustu, trúnaðargagnaeyðingu, ráðgjöf og úrgangsstjórnun.
Tengiliður:
Guðmundur Páll Gíslason
gudmundurg@terra.is
+354 5352500
Sólar
Bjóða sýnendum þrif fyrir og á meðan sýningu stendur, verði er stillt í hóf og fer eftir stærð sýningarrýmis.
Sólar hefur um árabil sérhæft sig í alhliða ræsingum og sérverkefnum fyrir fyrirtæki og stofnanir. Innan okkar raða er hópur starfsmanna með áratuga reynslu og þekkingu er kemur að sérþrifum eins og t.d. iðnaðarþrifum, glugga- og háþrýstiþvotti.
Tengiliður:
Karólína Natalía Karlsdóttir
karolina@solarehf.is
Manhattan Events
Sahara
Sahara er stafræn auglýsingastofa sem býður upp á heildstæða lausn á sviði markaðssetningar. SAHARA er í senn auglýsingastofa og framleiðslufyrirtæki sem einfaldar ferlið frá hugmynd til framkvæmdar. Framleiðsluteymið er skipað ljósmyndurum, textasmiðum, tökumönnum, framleiðendum, grafískum hönnuðum og hreyfimyndahönnuðum. Auk efnissköpunar sérhæfir SAHARA sig í stafrænum herferðum, umsjón með samfélagsmiðlum, árangursmælingum og stafrænum lausnum.
Tengiliður:
Eva Þorsteinsdóttir
eva@sahara.is
+354 771 6090
Hallur Jónasson
hallur@sahara.is
+354 650 9999
Viðskiptablaðið
Tvö fylgirit hafa verið gefin út um sýninguna og svo kemur veglegt sýningarblað út með Viðskiptablaðinu á opnunardegi sýningarinnar sem verður dreift með Viðskiptablaðinu og á sýningunni.
Tengiliður:
Sverrir Heimisson, auglýsingastjóri
sverrir@vb.is