Sýningarsvæði Tækniskólans var í dag valið athyglisverðast á stórsýningunni Verk og vit sem haldin er í Laugardalshöll nú um helgina. Það var álit dómnefndar að bás Tækniskólans sé mjög svo áhugaverður, mikið líf sé á honum og að gestir upplifi sig sem þátttakendur í því sem hann hefur fram að færa.

 

„Við erum virkilega ánægð með viðurkenninguna en með sýningarsvæðinu okkar erum við fyrst og fremst að sýna gestum að byggingariðnaðurinn snertir alla á hverjum einasta degi.

Það skiptir okkur í Tækniskólanum mestu máli að unga fólkið átti sig á því að það getur unnið við sín áhugamál og við erum hérna til að leiðbeina þeim,“ segir Ólafur Sveinn Jóhannesson, atvinnulífstengill hjá Tækniskólanum.

Annað sætið hlaut EFLA verkfræðistofa en hreinleiki og litafegurð þykir einkenna bás fyrirtækisins og voru dómarar á því að þegar komið er inn í hann sé upplifunin svolítið eins og gesturinn sé kominn inn í sína eigin veröld. Eins þótti dómnefnd skemmtilegt að sjá hvernig þau leika sér með andstæðurnar, heita og kalda lýsingu.

Í þriðja sæti eru svo Ergo og Trackwell.

Ergo fyrir hreinleika og markaðssetningu sem þykir mjög sniðug og eins hversu vel starfmenn á básnum sinna gestum sínum.

 

Trackwell fyrir vel útfærðan bás í almennu sýningarkerfi. Básinn þykir mjög snyrtilegur, opinn og er dómnefnd á því að andrúmsloftið þar sé virkilega gott.

Einnig veitti sýningarstjórn Sýningarverðlaun og horfði þá aðallega til útlits og glæsileika básanna. Að þessu sinni voru það Byko og LNS Saga sem þóttu skara fram úr, en bás Byko þykir svo vel heppnaður að hann verður nýttur í einni af verslunum fyrirtækisins.

 

„Það er greinilegt að sýnendur lögðu sig alla fram við gerð básanna og eins skín það í gegn að starfsmenn fyrirtækjanna hafa mjög gaman af þessu. Sýningin í ár er virkilega sterk og efnismikil, svo þetta var erfitt val, en vinningshafarnir eiga viðurkenningu skilið,“ segir Elsa Giljan Kristjánsdóttir, sýningarstjóri Verk og vit 2016 og formaður dómnefndar.

Dómnefndina skipuðu þau Elsa Giljan Kristjánsdóttir, sýningastjóri Verk og vit 2016, Edda V. Sigurðardóttir, grafískur hönnuður, Jón Hrafn Hlöðversson, byggingafræðingur, Arnar Gauti Sverrisson, bloggari, og Reynir Sýrusson, húsgagnahönnuður.