Um 94% sýnenda sögðust ánægð með sýninguna Verk og vit 2018 í viðhorfskönnun meðal sýnenda sem unnin var af Outcome könnunum fyrir AP almannatengsl. Þar kom einnig fram að allir sýnendur telja grundvöll fyrir því að Verk og vit verði haldin aftur. Sýningin var haldin í fjórða sinn dagana 8.–11. mars sl. Aðsóknarmet var slegið á sýningunni í ár en um 25.000 gestir sóttu sýninguna í Laugardalshöll, þar sem um 110 sýnendur tóku þátt að þessu sinni og kynntu vörur sínar og þjónustu.

Könnun Outcome var send til allra sýnenda í mars, að sýningunni lokinni, og var svarhlutfall um 65%. Meðal annarra helstu niðurstaðna var að 90% sýnenda mynduðu viðskiptatengsl og 85% sýnenda töldu sig hafa náð markmiðum sínum með þátttökunni mjög vel eða frekar vel. Þá var tæplega helmingur sýnenda þeir sömu og á sýningunni á undan, árið 2016.

Eins og sjá má af yfirgnæfandi meirihluta þeirra sem telja grundvöll fyrir því að Verk og vit verði haldin aftur hefur sýningin fest sig í sessi sem lykilviðburður í byggingariðnaði, skipulagsmálum og mannvirkjagerð á Íslandi. Flestir virðast jafnframt hlynntir því að láta tvö ár líða milli sýninga, því 100% svarenda sögðust fylgjandi því að næsta sýning yrði haldin árið 2020.

Góður rómur var jafnframt gerður að þeim tíma sem sýningin var opin á, en um 87% voru ánægð með fyrirkomulagið. Sýningin var opin fagaðilum á fimmtudegi og föstudegi, en almenningur boðinn velkominn laugardag og sunnudag.

Framkvæmdaaðili sýningarinnar var AP almannatengsl og samstarfsaðilar voru atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Reykjavíkurborg, Samtök iðnaðarins, BYKO og Landsbankinn.