Um 90% sýnenda sögðust ánægðir með sýninguna Verk og vit í viðhorfskönnun meðal sýnenda sem unnin var af Outcome hugbúnaði ehf. fyrir AP almannatengsl ehf. Þar kom einnig fram að 92% sýnenda töldu grundvöll fyrir því að verk og vit yrði haldin aftur.

Meðal annarra helstu niðurstaðna var að 80% sýnenda töldu sig hafa náð markmiðum sínum með þátttökunni mjög vel eða frekar vel.

Eins og sjá má af yfirgnæfandi meirihluta þeirra sem töldu grundvöll fyrir því að Verk og vit yrði haldin aftur hefur sýningin fest sig í sessi sem lykilviðburður í byggingariðnaði, skipulagsmálum og mannvirkjagerð á Íslandi.

Góður rómur var jafnframt gerður að opnunartíma sýningarinnar, þar sem um 80% voru ánægð með fyrirkomulagið sem var. Sýningin var opin fagaðilum á fimmtudegi og föstudegi, en almenningur boðinn velkominn laugardag og sunnudag. Um 83% töldu jafnframt að heppilegast væri að halda sýninguna í mars eða apríl.

Sýningin Verk og vit var síðast haldin dagana 17.–20. apríl 2008. Um 18.000 gestir sóttu sýninguna í Laugardalshöll þar sem um 100 fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög kynntu vörur sínar og þjónustu.

AP almannatengsl var framkvæmdaraðili sýningarinnar. Samstarfsaðilar voru iðnaðarráðuneyti, Reykjavíkurborg, Samtök iðnaðarins, Landsbankinn og Ístak.