Skipulagsfundur vegna sýningarinnar Verk og vit 2016 verður haldinn þriðjudagsmorguninn 26. janúar næstkomandi kl. 9:00 í Laugardalshöll.  Fjallað verður um sýninguna, undirbúning og skipulag ásamt öllu öðru mögulegu og ómögulegu sem snýr að þátttöku í sýningunni. Á fundinum verða einnig aðilar frá Sýningarkerfum, Símanum og Exton til að ræða um tæknilegar útfærslur og/eða þarfir sýnenda.

Dagskrá

8:30 Léttur morgunverður í anddyri fyrir framan fundarsal

9:00 Verk og vit 2016: Fjallað verður um sýninguna, undirbúning og skipulag

9:30  Umræður

Við vonumst til að sjá sem flesta á fundinum, hvort tveggja sýnendur og þá sem vilja kynna sér sýninguna nánar. Einnig hvetjum við sýnendur til að senda þá starfsmenn sem munu koma að sýningunni á fundinn.

Nauðsynlegt er að skrá sig á skipulagsfundinn eigi síðar en mánudaginn 25. janúar á  skraning@verkogvit.is.

Nánari upplýsingar fást í síma 514 1430 eða í tölvupósti á verkogvit@verkogvit.is