Sérstakt fylgiblað um Verk og vit fylgdi Viðskiptablaðinu þann 30. apríl síðastliðinn. Þar er bæði fjallað um sýninguna Verk og vit 2026 en einnig rætt við fólk sem þekkir vel til í byggingar-, skipulags- og mannvirkjageiranum um helstu strauma og stefnur um þessar mundir.
Í blaðinu er meðal annars rætt við Jóhönnu Klöru Stefánsdóttur, sviðsstjóra mannvirkjasviðs Samtaka iðnaðarins, sem segir að byggingariðnaðurinn á Íslandi velti 655 milljörðum kr. á ári. Í geiranum starfi um 2.500 fyrirtæki með 19.000 starfsmenn og því sé með sanni hægt að segja að byggingariðnaðurinn sé einn af burðarásum samfélagsins.
Í viðtali við Elsu Giljan Kristjánsdóttur, sem verið hefur sýningarstjóri Verk og vit frá upphafi, kemur fram að sýningarsvæðið sé næstum orðið fullbókað nú þegar. Það ætti ekki að koma á óvart, því það hefur sýnt sig frá upphafi að sýningin fái góðar viðtöku hjá fyrirtækjum í greininni, óháð hinum ýmsu sveiflum sem hafa orðið í atvinnulífinu á síðustu 20 árum.
Þá er einnig rætt við Kjartan Long, verkefnastjóra nýsköpunar hjá BYKO, sem segir að fyrirtækið sé þegar farið að undirbúa sýninguna 2026 og hyggist kynna þar fjölmargar spennandi nýjungar. Arnaldur Gauti Johnson hjá Sölutrausti tekur í svipaðan streng og segir að nýjar vörur og þjónusta sem fyrirtækið muni kynna á Verk og vit 2026 muni marka upphaf nýs kafla hjá fyrirtækinu. Í blaðinu ræðir jafnframt Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, forstjóri Vinnueftirlitsins, um öryggi á vinnustöðum á breiðum grunni og svona mætti lengi telja, því fjölmargt annað áhugavert má finna í blaðinu.