Morgunblaðið gaf út sérblað í tilefni sýningarinnar Verk og vit 2026 sem fór í aldreifingu með Morgunblaðinu.

Í blaðinu er fjallað um byggingariðnaðinn og mannvirkjagerð á breiðum grundvelli. Meðal annars er rætt við Áslaugu Pálsdóttur sem hefur verið framkvæmdarstjóri Verk og vit frá upphafi og Jóhönnu Klöru Stefánsdóttur, sviðsstjóra mannvirkjagerðar Samtaka iðnaðarins.

Einnig er rætt við fjölda fólks sem starfar í tengdum greinum. Að sögn Heimis Guðmundssonar hjá Vinnueftirlitinu er lykilatriði að efla öryggismenningu. Ásgeir Ásgeirsson hjá HR segir fyrirhugaðar framkvæmdir og uppbyggingu kalla á fjölda fólks með menntun í byggingafræði, tæknifræði eða iðnfræði.

Fjallað er um fyrirtækið Mannverk og margt annað fróðlegt er að finna í blaðinu.

SKOÐA BLAÐIÐ