Ráðstefna um skipulagsmál á höfuðborgarsvæðinu verður haldin í Laugardalshöll föstudaginn 9. mars kl. 13–16 í tengslum við sýninguna Verk og vit 2018 í samstarfi við Landsbankann og Samtök iðnaðarins. Markmið ráðstefnunnar er að varpa ljósi á framtíð höfuðborgarsvæðisins þegar horft er til skipulags, innviða og fjármögnunar. Farið verður yfir helstu tækifæri og áskoranir sem höfuðborgarsvæðið stendur frammi fyrir næstu ár.

Höfuðborgarsvæðið hefur tekið miklum breytingum að undanförnu og framundan eru fjölmargar áskoranir. Mikið hefur t.d. hvílt á byggingariðnaðinum við uppbyggingu innviða og á sama tíma hefur átt sér stað mikil uppbygging gistirýmis fyrir ferðamenn.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, setur ráðstefnuna.

Erindi flytja:
Ármann Kr. Ólafsson, formaður Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og bæjarstjóri í Kópavogi
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur
Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins
Ari Skúlason, hagfræðingur hjá Landsbankanum
Una Jónsdóttir, hagfræðingur og deildarstjóri leigumarkaðsmála hjá Íbúðalánasjóði
Örn Tryggvi Johnsen, rekstrarstjóri ÞG verktaka
Ingibjörg Þórðardóttir, löggiltur fasteignasali hjá Híbýli fasteignasölu og fyrrv. formaður Félags fasteignasala. Fundarstjóri er Sigmundur Ernir Rúnarsson fjölmiðlamaður.

Ráðstefnan er öllum opin en þátttökugjald er kr. 6.900. Innifalinn er aðgöngumiði á sýninguna Verk og vit 2018. Skráning á verkogvit.is/radstefna. Sætafjöldi er takmarkaður.

Skráning er hér.