Samtök iðnaðarins verða með opnunarráðstefnu Verk og vit 2026 fimmtudaginn 19. mars kl. 13.00-14.45 í Laugardalshöllinni. Á ráðstefnunni verður kastljósinu beint að fagþekkingu framtíðarinnar í byggingar- og mannvirkjaiðnaði – hvaða hæfni, metnað og fagmennsku vill iðnaðurinn rækta og efla?
Byggingar- og mannvirkjaiðnaðurinn er ein af burðarstoðum íslensks samfélags. Hann mótar umhverfið sem við búum í, skapar húsnæði, innviði og störf og leggur grunn að verðmætasköpun til framtíðar. Að baki hverju mannvirki stendur fagfólk á sínu sviði sem ber ábyrgð á gæðum, öryggi og traustri framkvæmd.