BYKO hefur frá upphafi verið einn af lykil þátttakendum sýningarinnar Verk og vit og litið á það sem mikilvægan hlekk til að halda uppi góðum tengslum við fólk sem er í framkvæmdum nú eða með áform um framkvæmdir.
Sýningin hefur gefið fyrirtækjum tækifæri til að kynna nýjungar og þær áherslur sem þau standa fyrir. BYKO hefur nálgast viðburðinn einmitt með það að leiðarljósi,” segir Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri BYKO.
,,Verk og vit hefur gefið okkur tækifæri til að þróast og hver sýning haft mismunandi útfærslur á bás og efnistökum og gert það að verkum að BYKO nálgast viðfangsefnið út frá ólíkum sjónarhornum byggt á því sem þau telja mikilvægt að segja frá hverju sinni. Engin undantekning er á því að þessu sinni. Þetta árið leggur BYKO áherslu á mikilvægi þess að tengja atvinnulífið enn frekar við menntakerfið. Gott samstarf á milli skóla og atvinnulífs er einn af hornsteinum nýsköpunar og framþróunar,“ segir Sigurður.
Frá hugmynd að fullbúinni vöru
Tækniskólinn verður með BYKO á stóra sviðinu þar sem kynnt verður afurð árangursríks samstarf beggja á milli. Hrundið var af stað hugmyndasamkeppni innan hönnunarbrautar skólans. Verkefnið var að hanna saunaklefa sem uppfyllir þarfir og væntingar íslenska markaðarins. Nemendur hönnunardeildar fengu frjálsar hendur við sköpun og uppsprettu innblásturs við hönnun saunaklefans.
Þær Matthildur Ingadóttir, Svandís Halldórsdóttir og Harpa Hua Zi Tómasdóttir eru höfundar vinningstillögunnar. Þær höfðu þetta að segja um vöruna:
,,Hugsun okkar á bak við saununa var að passa upp á það að hafa í huga markhópinn sem er eflaust fólk sem fer í gufu og fólk sem vill dást af náttúrunni.
Við höfum skapað sánu sem hægt er að nota bæði í bakgarði fólks og í sumarbústöðum. Gufan á að vera frekar frjáls þegar kemur að staðsetningu og hönnuninni. Við erum afskaplega ánægðar með lokaútkomuna því allar okkar hugmyndir fengu sér stað í henni. Við fengum álit hjá fólki sem var alsælt með þessa nýsköpun okkar. Við vonum að fólk sjái þessa frábæru gufu eins og við og hafa það í huga að hún er einstök og okkar frábæra sameiginlega listaverk.”
Nemendur fengið tækifæri til að hanna raunverulegan hlut
,,Verkefnið sem við erum að vinna að með BYKO er virkilega skemmtilegt. Þarna hafa nemendur á hönnunarbraut skólans fengið tækifæri til þess að hanna ,,raunverulegan hlut“ með þeim skorðum sem möguleg framleiðsla fyrir notendamarkað setur. Lausnin þarf ekki bara að felast í flottri hönnun sem fellur vel að umhverfinu heldur þarf hún að vera vel framkvæmanleg og hagkvæm og taka mið af reynslu og ábendingum reynslubolta úr Byko. Tillögurnar sem komu úr forkeppninni voru virkilega flottar og við hlökkum mikið til að fylgjast með nemendum okkar í húsasmíði reisa Tæknó-Byko sánuna í Laugardalshöll í mars. Hver veit nema hún muni hlýja mörgum Íslendingum í görðum landsins í framtíðinni,” segir Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari Tækniskólans.
Nemar við tækniteiknun skólans tóku svo við verkefninu frá hönnuðum og útbjuggu verkteikningar. Þær teikningar voru síðan sendar til framleiðslufyrirtækisins BITUS í Lettlandi sem BYKO hefur átt í áratuga samstarfi við. BITUS Lettland fullgerði framleiðsluteikningarnar og forvann vöruna. Afurðin verður þar eftir afhent nemum húsasmíðadeildar sem fullvinna vöruna sem verður frumsýnd á sýningunni.
Margir þættir sem vöruhönnuðir þurfa að huga að
Þær Matthildur, Svandís og Harpa eru ánægðar með samstarfið sem þær segja að hafi verið afar ánægjulegt, árangursríkt og gefandi fyrir alla aðila. ,,Það er okkar einskæra von að bilið á milli raunveruleikans sem atvinnulífið býður uppá og námsins hafi minnkað og okkur hafi tekist að brúa það bil. Það eru margir þættir sem vöruhönnuður þarf að huga að þegar komið er að þróun vöru. Fyrir hvaða markað er hannað, hver er viðskiptavinurinn, hvað er viðskiptavinurinn tilbúinn að greiða fyrir vöruna, hver er framleiðslukostnaður, möguleg viðbrögð samkeppninnar og svo mætti telja lengi. Það sem okkur skiptir miklu máli er að standa vörð um höfundarrétt og að höfundar átti sig á mikilvægi samningagerðar sem tryggir þeirra rétt bæði hvað varðar höfundarétt og ekki síður þóknun sem getur verið vandasamt og flókið ferli fari sánan í framleiðslu.”
Á sýningunni verður samningur undirritaður á milli þeirra sem höfunda og BYKO sem tekur á ofangreindum þáttum.
BYKO kynnir áhugaverða nýjung á sýningunni
BYKO mun einnig kynna fyrir gestum sýningarinnar áhugaverða nýjung sem m.a. snýr að brunavarðri utanhúss timburklæðningu sem er hefur verið ryðja sér hratt til rúms í evrópu. Framsækið verkefni hér á Íslandi hafa nú þegar verið samþykkt og gestum sýningarinnar geta kynnt sér þessa nýjung, hitt framleiðanda og þreifað á vörunni.
,,Við hjá BYKO hlökkum sem fyrr til að taka þátt í Verk og Vit og bjóðum gesti hjartanlega velkomna á sýningarbás okkar. Með fagmennsku, framsækni og gleði kynnum við það sem við höfum fram að færa sem leiðandi aðili á byggingavörumarkaði og hlökkum til að eiga innihaldsrík samtöl við fagfólk og áhugafólk um það sem skiptir mál þegar komið er að byggingariðnaði,“ segir Kjartan Long, verkefnastjóri nýsköpunar hjá BYKO.

Hér má sjá dómnefndina samankomna. Kjartan Long, verkefnastjóri nýsköpunar, og Sigurður Brynjar Pálsson forstjóri ásamt samstarfsmönnum í BYKO og kennurum í Tækniskólanum.