Í tilefni sýningarinnar Verk og vit 2026 og 20 ára afmælis hennar gaf Viðskiptablaðið út veglegt 80 blaðsíðna afmælisrit sem dreift hefur verið með Viðskiptablaðinu. Í tímaritinu er fjallað um byggingariðnaðinn og mannvirkjagerð á breiðum grundvelli og rætt við fjölda fólks sem starfar í tengdum greinum. Meðal annars er rætt við Elsu Giljan Kristjánsdóttur sem hefur verið sýningarstjóri Verk og vit frá upphafi og Jóhönnu Klöru Stefánsdóttur, sviðsstjóra mannvirkjagerðar Samtaka iðnaðarins. Jóhanna segir í ítarlegu viðtali að staðan í mannauðsmálum byggingariðnaðarins sé áhyggjuefni, mörg hundruð ungmennum sé vísað frá iðnnámi á hverju ári um leið og skortur sé á faglærðu fólki í þessum greinum. Þá er fjallað um áætluð útboð upp á 221 milljarð króna í fyrirhuguðum verklegum framkvæmdum, samstarf Tækniskólans og BYKO og fleira áhugavert.